Nostrum Design fatnaður er hannaður og framleiddur á Íslandi af hönnuðunum Örnu Vignisdóttur, Huldu Hallgrímsdóttur og Sigrúnu Dóru Jónsdóttur. Þær útskrifuðust með B.ed. gráðu sem textílkennarar frá KHÍ og hafa starfað við fagið í fjölda ára. Hönnuðurnir eru allar félagar í Fatahönnunarfélagi Íslands.
Nostrum Design notar hágæða efni og er sérstaða hönnunarinnar að hún er tímalaus, einstök og öðruvísi. Fatnaðurinn er kvenlegur, þægilegur og má nota við öll tilefni. Boðið er uppá fjölbreytilegt úrval af fylgihlutum s.s húfum, krögum og grifflum.
Fatnaðurinn er til sölu í ýmsum verslunum s.s. Sirku Akureyri og Grand Hótel. Einnig í netverslunum: www.alltislenskt.is og www.nordicstore.com
Nostrum Design verslunin er á Skólavörðustíg 1a.